Sjá snjóinn glitra á fjallinu í nótt, ekkert fótspor hér að sjá
Eitt einsemdar konungsríki, og ég virðist, drottningin
Vindurinn gnauðar eins og ólgan inni í mér
Gat ei byrgt það inni en ég reyndi samt

Hleyp þeim ei inn lát þau ei sjá
Vertu góða stelpan sem þú varst
Feldu, bældu, seg þeim ei frá
En þau vita það þá

Þetta er nóg, þetta er nóg. Get ei lengur haldið í mér
Þetta er nóg, þetta er nóg. Ég sný burt og skelli á eftir mér
Mig varðar ei, hvað þau segja við því
Látið geysa storm, kuldinn hann hefur ei háð mér neitt

Það er merkilegt hvað fjarlægð, gerir allt svo ofursmátt
Og hræðslan sem hafði tökin, virðist missa allan mátt

Ég þarf að sjá hvað ég get gert, og reyná verk mín umtalsvert
Og boð og bönn ei halda mér
Ég er frjáls

Þetta er nóg, þetta er nóg. Uppi í himni eins og vindablær
Þetta er nóg, komið nóg. Og tár mín enginn sér fær
Hér ég stend, og hér ég verð
Látið geysa storm

Minn máttur þyrlast gegnum loftið niðrá jörð
Mín sál er hringiða úr frosnum brotamyndum gjörð
Ein hugsun kristalla sem ískalt sprengigos
Ég aldrei aftur sný, það var sem eitt sinn var

Þetta er nóg, þetta er nóg. Og ég rís eins og morgunsól
Þetta er nóg, þetta er nóg. Þessi þæga stelpa fór
Hér ég stend, ein um bjartan dag
Látið geysa storm

Kuldinn hann hefur ei háð mér neitt
